Sjá upplýsingar um vöruna
1 af 4

Kertahúsið

Gróttuviti

Almennt verð 7.900 ISK
Almennt verð Útsöluverð 7.900 ISK
Útsala Uppselt!
vsk. innifalinn sendingarkostnaður reiknast við lok pöntunar.

Kertið er 28 cm á hæð og 460 g

Þetta er handgert kerti, framleitt á vinnustofunni okkar á Ísafirði.

Við steypum kertin okkar sjálf úr fremur hörðu vaxi, til þess að ná fram kvössum brúnum og smáatriðum líkt og gluggapóstum og útskorningum. Þau brenna því einnig mjög lengi og halda að mestu leiti sínu formi. Þar sem sami kveikur liggur niður kertið en vitarnir eru töluvert mjórri að ofan heldur en að neðan þá mælum við með að brenna hann í stutta stund í einu til að byrja með á meðan turninn bráðnar niður til þess að formið haldi sér niður eftir kertinu og hægt er að njóta þá fallegrar birtu sem skín meðfram gluggum vitans. 

Ávallt skal leggja kertið á hitaþolinn platta áður en kveikt er á því, stytta reglulega kveikinn til að brennslan verði sem jöfnust og aldrei skilja logandi kerti eftirlitslaust

 

Upplýsingar til yndisauka. 

Gróttuviti stendur út á eyjunni Gróttu á Seltjarnarnesi. Viti hefur staðið á Gróttu frá 1897 en núverandi viti var byggður árið 1947. Axel Sveinsson verkfræðingur og Einar Stefánsson hönnuðu vitann sem er 24 m á hæð. 

Vitavörður bjó í Gróttuvita fram til 1970. 

 

Heimildir: Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson, Vitar á Íslandi, 2002.