Vörulínur: Íslenskar byggingar
Kertin okkar eru af allskonar byggingum víða um land. Fyrst um sinn lögðum við áherslu á Vestfirskar byggingar sem voru í kringum okkur. Markmiðið er að steypa byggingar sem vekja upp nostalgíu, minningar og góðar tilfinningar. Einnig byggingar sem eru arkítektúrlega merkilegar eða byggingar sem hafa mikla og einstaka sögu.
Hversvegna kerti?
Kertavax hefur þann eiginleika að geta dregið fram smæstu smáatriði sem eykur sanngildi vörunnar. Við náum fram gluggapóstum, bárujárni og steinahleðsluáferð með kertavaxi sem erfitt væri að ná fram með öðru hráefni. Sumar af okkar byggingum er hægt að nota sem luktir, þá er brenndur fullkominn hringur niður í kertið þegar kveikt er á því og eftir það er hægt að setja t.d. hrísgrjón eða kaffibaunir í botninn og nota síðan sprittkerti. Þá kemur falleg birta út um glugga byggingarinnar.
Síðan er raunveruleikinn oft sá að við söfnum allskyns stofudjásni, styttum og gersemum og með tíð og tíma þurfum við að rýma í hillum fyrir einhverju nýju. Þá er tilvalið að hægt er að nota byggingarnar sem kerti og fá not úr þeim. Þær eru hannað á þann hátt að þráðurinn bræðir gat niður í kertið og því á kertið ekki að bráðna í stóran poll heldur beint niður. Því er alltaf öruggast að setja eitthvað undir kertið þegar kveikt er á því, t.d. glerdisk.