Sjá upplýsingar um vöruna
1 af 4

Kertahúsið

Kálfshamarsviti

Almennt verð 7.900 ISK
Almennt verð Útsöluverð 7.900 ISK
Útsala Uppselt!
vsk. innifalinn sendingarkostnaður reiknast við lok pöntunar.

Kertið er um 22 cm á hæð og 390 g

Þetta er handgert kerti, framleitt á vinnustofunni okkar á Ísafirði.

Við steypum kertin okkar sjálf úr fremur hörðu vaxi, til þess að ná fram kvössum brúnum og smáatriðum líkt og gluggapóstum og útskorningum. Þau brenna því einnig mjög lengi og halda að mestu leiti sínu formi. Þar sem sami kveikur liggur niður kertið en vitarnir eru töluvert mjórri að ofan heldur en að neðan þá mælum við með að brenna hann í stutta stund í einu til að byrja með á meðan turninn bráðnar niður til þess að formið haldi sér niður eftir kertinu og hægt er að njóta þá fallegrar birtu sem skín meðfram gluggum vitans. 

Ávallt skal leggja kertið á hitaþolinn platta áður en kveikt er á því, stytta reglulega kveikinn til að brennslan verði sem jöfnust og aldrei skilja logandi kerti eftirlitslaust

 

Upplýsingar til yndisauka. 

Kálfshamarsviti stendur við Kálfshamarsvík á Norðurlandi, rétt norðan við Blönduós og er nyrsti viti landsins. Vitinn var byggður árið 1940 og hannaður af Axel Sveinssyni verkfræðingi. Viti hefur staðið í Kálfshamarsvík frá 1913 en núverandi viti er 16,3 m á hæð. 

Axel sveinsson sótti innblástur í vita sem Guðjón Samúelsson hafði teiknað. Því má sjá líkindi með gluggum vitans í gluggum bygginga eftir Guðjón, samanber Háskóli Íslands og Akureyrarkirkja. 

 

Heimildir: Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson, Vitar á Íslandi, 2002.