Sjá upplýsingar um vöruna
1 af 4

Kertahúsið

Malarrifsviti

Almennt verð 7.900 ISK
Almennt verð 0 ISK Útsöluverð 7.900 ISK
Uppselt!
vsk. innifalinn sendingarkostnaður reiknast við lok pöntunar.

Kertið er um 27 cm á hæð og 450 g

Þetta er handgert kerti, framleitt á vinnustofunni okkar á Ísafirði.

Við steypum kertin okkar sjálf úr fremur hörðu vaxi, til þess að ná fram kvössum brúnum og smáatriðum líkt og gluggapóstum og útskorningum. Þau brenna því einnig mjög lengi og halda að mestu leiti sínu formi. Þar sem sami kveikur liggur niður kertið en vitarnir eru töluvert mjórri að ofan heldur en að neðan þá mælum við með að brenna hann í stutta stund í einu til að byrja með á meðan turninn bráðnar niður til þess að formið haldi sér niður eftir kertinu og hægt er að njóta þá fallegrar birtu sem skín meðfram gluggum vitans. 

Ávallt skal leggja kertið á hitaþolinn platta áður en kveikt er á því, stytta reglulega kveikinn til að brennslan verði sem jöfnust og aldrei skilja logandi kerti eftirlitslaust

 

Upplýsingar til yndisauka 

Malarrifsviti stendur á Malarrifi vestanlega á Snæfellsnesi. Vitinn var teiknaður af Ágústi Pálssyni Arkítekt og byggður árið 1946. Hann er steinsteyptur og rúmlega 20 m hár. Viti hefur staðið á Malarrifi frá 1917. 

Núverandi viti var friðaður árið 2003.

 

Heimildir: Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson, Vitar á Íslandi, 2002.