Sjá upplýsingar um vöruna
1 af 3

Kertahúsið

Vattarnesviti

Almennt verð 7.900 ISK
Almennt verð Útsöluverð 7.900 ISK
Útsala Uppselt!
vsk. innifalinn sendingarkostnaður reiknast við lok pöntunar.

Kertið er 25 cm á hæð og um 450 g 

Þetta er handgert kerti, framleitt á vinnustofunni okkar á Ísafirði.

Við steypum kertin okkar sjálf úr fremur hörðu vaxi, til þess að ná fram kvössum brúnum og smáatriðum líkt og gluggapóstum og útskorningum. Þau brenna því einnig mjög lengi og halda að mestu leiti sínu formi. Þar sem sami kveikur liggur niður kertið en vitarnir eru töluvert mjórri að ofan heldur en að neðan þá mælum við með að brenna hann í stutta stund í einu til að byrja með á meðan turninn bráðnar niður til þess að formið haldi sér niður eftir kertinu og hægt er að njóta þá fallegrar birtu sem skín meðfram gluggum vitans. 

Ávallt skal leggja kertið á hitaþolinn platta áður en kveikt er á því, stytta reglulega kveikinn til að brennslan verði sem jöfnust og aldrei skilja logandi kerti eftirlitslaust

Upplýsingar til yndisauka

Vattarnesviti stendur niður við ströndina á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Axel Sveinsson verkfræðingur hannaði vitann og var hann byggður árið 1957. Viti hefur verið á Vattarnesi frá 1912. Núverandi viti er steinsteyptur og um 12 m á hæð. 

 

Heimildir: Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson, Vitar á Íslandi, 2002.